Kynning á námskeiðinu
Velkomin á námskeiðið Fjármál 101
Næstu daga munum við skoða fjármálahegðun okkar í þeirri von að við getum bætt fjármálin.
Verkefnið okkar er þríþætt,
- Við skoðum fjármálin og fáum rétta mynd af stöðu okkar.
- Við setjum okkur viðráðanleg markmið sem hjálpa okkur að bæta stöðuna.
- Við metum líðan okkar og tilfinningar og endurskoðum stöðuna.
Þessum markmiðum náum við með því að svara fimm spurningum:
- Hvaðan koma peningarnir okkar?
- Hvert fara peningarnir okkar?
- Þurfa peningarnir að fara þangað?
- Viljum við að þeir fari þangað?
- Eru peningarnir okkar að styðja við markmiðin okkar?
Verkefnabókin Betri fjármál er seld á vef Háskólaprents.